Vetrarfrí / Veiðihúsaferð
Sælir Drengir og Stúlkur.. nú er loks komið að því.. því sem allir hafa beðið eftir.. Bloggið um Vetrarfrí Posse...
Því miður mun þó ekki allt koma fram í þessu bloggi þar sem að ákveðið var í lok ferðar að what goes in Seglbúðir.. stays in Seglbúðir.. ég ætla nú samt að segja svona í grófum dráttum hvað gerðist.. þið getið svo bara búið til ykkar eigin sögu um restina...
Sóðalegt var það.. soldið Sick.. en samt frekar Nice..
Ég, Leifur og Tinni byrjuðum ferðina því að mæta eldhressir á klaustrið á fimmtudeginum. Slökuðum bara á að sváfum út og gerðum lítinn skandal það kvöldið..
Á föstudaginn fórum við svo að gera allt til, redda kjöti fyrir fleiri fleiri 100 kalla.. Guðmundur skellti sér í Skaftárskálann og fékk sér ógnarmagn af Bjössa.. 6 * 24.
Síðan komu strákarnir ferskir um svona 7-8 leytið.. Komu með tonn af mat og ársbirgðir af gosi í boði Bónus. Við fórum bara beint í að grilla T-Bone steikur og slökuðum svo vel á yfir kjertaljósi, simfoníum og mjólkurglasi. 15 min seinna vorum við svo allir komnir á Penis og dottnir í Pottinn.. Okkur leið vægast sagt vel þar sem að Veiðihúsið góða hefur náttl allt það sem maður getur óskað sér á svona stundu.. Klakavél, Grill, Pott, Saunu, Sjónvarp í hverju herbergi, Stóra stofu með hugo TV, all svaðalegar græjur og bara allt sem hjartað óskaði sér... Síðan var náttl allt flæðandi í mat og mjólk... Lítið er svo sem hægt að segja um skandal þetta kvöldið en farið var á eitt mesta trúnó sem hópurinn hefur upplifað og er hægt að segja að að nú séu alveg gjörsamlega fullkomlega engin leyndarmál á milli okkar...
Vaknað var um hádegi á Laugardaginn, sumir vöknuðu þegar Gummi gaf frá sér eikkað undarlegt hljóð.. nokkurn veginn svona ,, Klliittsshh “ Síðan skottuðumst við upp í sjoppu, keyptum einhverjar einhverjar helstu nauðsynjar eins og Mortal Kombat gleraugun hans Ásgeirs og Skyr og eikkað.. Um daginn var bara chillað, Kjartan kom með nokkra góða Boston Legal með meiru og Jónas, Leifur, Sindri og Tinni fóru eikkað í standpínukeppni að veiða... Um kvöldið var svo komið að gourme mat.. Lambinu sjálfu sem að Lundi Sweeper Erlendsson reddaði.. Kjartan flexaði Geggjaðar kartöflur og sósu og síðan var sama gamla sagan.. 15 min seinna voru allir komnir á penis og farnir að slaka á í Pottinum.. Þaðan var þetta sama góða blurrið af skandal og skemmtileg heitum sem ekki má lýsa hér.. En ég ætla að skella inn nokkrum stikkorðum sem fólk síðan til eikkað úr..
Öllu var deilt í þessari ferð.. 
Ásgeir er nú nr. Ellefu og Siggi nr. 12
Ásgeir fann Rommið...
Garri lennti í eilitlum erfiðleikum.
Gummi, Kjjartan og Leifur voru vitni að hlutum sem voru NASTY !
Tinni flexaði skemmtilega og svaf þess á milli.
Jónas afhjúpaði skoðanir sínar á skemmtilegann hátt..
Sindri fór á fast.. or did he ??
Ginger börnin gerðu góða hluti.. eða slæma.. ?
Morguninn eftir vöknuðum við kl. 9 til að fara veiða i klak.. ( veiða í net.. ) Allir voru mjög ferskir eftir gærdaginn eins og við mátti búast og skemmtu sér konunglega í veiðinni.. nema Kannski Garri sem tók voðalega lítinn þátt í því...
Ekki gerðist margt eftir það, við þrifum, veiddum eikkað smá og vorum síðan með almenn dólgslæti....
Góð ferð í alla staði og hlakka allir til eftir að eitthvað svona gerist aftur...